Kortalán Skilmálar
- Undirritaður korthafi/kaupandi samkvæmt Kortalánssamningi þessum lofar að greiða Rapyd Europe hf., kt. 500683-0589, Dalshrauni 3, 220 Hafnarfirði („Rapyd“), eða þeim sem síðar kann að eignast samning þennan, ofangreinda fjárhæð með þeim kjörum og afborgunum sem þar getur.
- Greiðslumiðlun ehf., kt. 540612-1020, Laugavegi 99, 101 Reykjavík („umsýsluaðili“), annast umsýslu Kortalánssamnings þessa fyrir Rapyd, þ.m.t. móttöku og afgreiðslu lánsumsókna, gerð lánaskjala, skilmálabreytingar, rekstur þjónustuvers og innheimtu. Heimasíða Greiðslumiðlunar ehf. er www.greidslumidlun.is.
- Vextir á höfuðstól skuldarinnar reiknast frá útgáfudegi til fyrsta gjalddaga og síðan mánaðarlega eftir það. Vaxtakjör miðast við verðskrá Rapyd eins og hún er á hverjum tíma og skuldbindur korthafi/kaupandi sig jafnframt til að greiða færslugjöld skv. verðskrá Rapyd á umsömdum gjalddögum. Gildandi verðskrá Rapyd á hverjum tíma er aðgengileg á www.Rapyd.net. Gildistími samningsins er frá útgáfudegi til greiðslu lokagjalddaga.
- Ef höfuðstóll skuldarinnar ber breytilega vexti eru breytilegir vextir reiknaðir af höfuðstól eins og hann er á hverjum tíma. Rapyd er heimilt að breyta vöxtunum breytist þeir þættir sem vextirnir ákvarðast af. Við breytingar á vöxtum horfir Rapyd til breytinga á fjármögnunarkostnaði (lánskjörum) Rapyd. Korthafa verður tilkynnt um breytingar á vöxtum með tölvupósti með 30 daga fyrirvara. Þegar breytingar á vöxtum eru af völdum breytinga á viðmiðunargengi, viðmiðunarvöxtum eða vísitölum verður tilkynnt um breytingar á þriggja mánaða fresti.
- Við greiðslufall er Rapyd heimilt að breyta vaxtakjörum vaxtalauss láns úr vaxtalausu láni í lán með breytilegum vöxtum við útreikning næstu afborgunar. Vextir á höfuðstól skuldarinnar reiknast þá frá greiðslufalli til fyrsta gjalddaga í kjölfar greiðslufalls og síðan mánaðarlega eftir það. Vaxtakjör miðast við verðskrá Rapyd eins og hún er á hverjum tíma.
- Verði vanskil á greiðslu afborgana, vaxta eða annars kostnaðar af samningnum er Rapyd heimilt að fella alla skuldina í gjalddaga fyrirvaralaust og án uppsagnar. Greiða ber dráttarvexti af gjaldfallinni og/eða gjaldfelldri fjárhæð og eru þeir ákveðnir af Seðlabanka Íslands á hverjum tíma. Dráttarvextir eru grunnur dráttarvaxta auk vanefndaálags skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu. Til viðbótar greiðist innheimtukostnaður sem Rapyd eða umsýsluaðili verður fyrir vegna þess að korthafi stendur ekki í skilum. Við innheimtu gjaldfallinna og/eða gjaldfelldra krafna og kostnaðar er farið eftir innheimtulögum nr. 95/2008, reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl., verðskrá Rapyd hverju sinni og gjaldskrá lögfræðiinnheimtu hverju sinni, t.d. málflutningsþóknun. Fjárhæðir innheimtukostnaðar geta tekið breytingum í samræmi við breytingar á verðskrá Rapyd, sem aðgengileg er á www.Rapyd.is.
- Verði um vanskil að ræða og kaupandi stendur ekki í skilum, verði gert hjá honum árangurslaust fjárnám, leiti hann greiðslustöðvunar eða nauðasamninga, eða ef bú hans verður tekið til gjaldþrotaskipta er Rapyd, eða þeim sem síðar kann að eignast lánssamninginn, heimilt að gjaldfella eftirstöðvar skuldarinnar fyrirvaralaust. Gjaldfallin skuld ber þá dráttarvexti í samræmi við ákvörðun Seðlabanka Íslands samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.
- Með undirritun samnings þessa heimilar korthafi að greiðslukortareikningur hans verði skuldfærður fyrir mánaðarlegum afborgunum, vöxtum, gjöldum og kostnaði sem kveðið er á um í samningi þessum.
- Ef korthafi fær ekki heimild hjá útgefanda fyrir afborgun og eftirstöðvar skuldarinnar verða ekki skuldfærðar á greiðslukortið, ber korthafa að greiða umsamdar afborganir á skrifstofu Rapyd, nema honum berist tilkynning um annan greiðslustað. Greiðslutilkynning með tölvupósti og birting greiðslutilmæla í netbanka telst í þessu tilliti nægileg tilkynning. Korthafi ber kostnað af innheimtunni og er Rapyd og umsýsluaðila heimilt að innheimta sérstakt þjónustugjald vegna hennar skv. verðskrá Rapyd.
- Í samræmi við 18. gr. laga nr. 33/2013 um neytendalán er korthafa heimilt að standa skil á skuldbindingum sínum samkvæmt lánssamningi, að öllu leyti eða að hluta, fyrir þann tíma sem umsaminn er. Óski korthafi að greiða upp Kortalán fyrir lokagjalddaga skal það gert í samráði við Rapyd og verða eftirstöðvar lánsins skuldfærðar á greiðslukortareikning hans. Korthafi skal í slíkum tilvikum hafa samband við Greiðslumiðlun í síma 527 5480 eða um netfangið Rapyd@greidslumidlun.is Rapyd eða umsýsluaðila er heimilt að kveða á um að uppgreiðsla lánsins skuli fara fram á aðgangsstýrðum þjónustuvef. Rapyd áskilur sér rétt til að krefjast uppgreiðslugjalds í samræmi við 18. gr. laga nr. 33/2013. Uppgreiðslugjaldið byggir á hlutlægum grunni vegna kostnaðar sem Rapyd verður fyrir og tengist beint greiðslu fyrir gjalddaga. Ef krafist er uppgreiðslugjalds fellur það á 30 dögum eftir greiðslu.
- Árleg hlutfallstala kostnaðar er heildarlántökukostnaður, lýst sem árlegum hundraðshluta af heildarfjárhæð lánsins, reiknuð samkvæmt reglugerð nr. 965/2013, um útreikning árlegrar hlutfallstölu kostnaðar. Heildarlántökukostnaður samanstendur af öllum kostnaði sem korthafi þarf að greiða í tengslum við lán þetta sem Rapyd er kunnugt um við kaupdag, þ.m.t. allur kostnaður sem tilgreindur er í greiðsluáætlun, vextir og lántökugjöld. Árleg hlutfallstala kostnaðar er reiknuð út á þeim tíma sem samningurinn er gerður. Við útreikning hennar er gengið út frá því að samningurinn gildi umsaminn tíma og að korthafi standi við skuldbindingar sínar samkvæmt skilmálum samningsins. Útreikningur árlegrar hlutfallstölu kostnaðar miðar við þá forsendu að verðlag, vextir og önnur gjöld verði óbreytt til loka lánstímans.
- Greiðsluáætlun er hluti af samningi þessum og skal afhent korthafa við undirritun. Korthafi á ávallt rétt á að fá afhent, samkvæmt beiðni og honum að kostnaðarlausu, reikningsyfirlit í formi niðurgreiðslutöflu sem sýnir greiðslur sem þarf að inna af hendi og tímabil og skilyrði varðandi greiðslur, sundurliðun allra greiðslna sem sýnir niðurgreiðslu höfuðstóls og allan viðbótarkostnað. Rapyd og umsýsluaðila er heimilt að beina því til korthafa að nálgast slíkt reikningsyfirlit á aðgangsstýrðum þjónustuvef.
- Vilji korthafi óska eftir breytingum á skilmálum fyrir endurgreiðslu skuldarinnar eða eftir endurfjármögnun lánsins skal hann senda umsókn þess efnis til umsýsluaðila. Rapyd og umsýsluaðila er heimilt að beina því til korthafa að senda slíka umsókn rafrænt á aðgangsstýrðum þjónustuvef. Rapyd og umsýsluaðila er heimilt að leggja á og innheimta sérstakt gjald vegna slíkra skilmálabreytinga eða endurfjármögnunar í samræmi við verðskrá Rapyd. Rapyd og umsýsluaðila er ekki undir neinum kringumstæðum skylt að fallast á umsókn um skilmálabreytingar eða endurfjármögnun.
- Í samræmi við 16. gr. laga nr. 33/2013 um neytendalán hefur korthafi rétt til að falla frá samningi, án þess að tilgreina nokkra ástæðu, enda sendi hann tilkynningu þar að lútandi til lánamiðlara og Rapyd innan 14 daga frá þeim degi sem samningur er gerður. Ef korthafi vill nýta rétt sinn til að falla frá samningi skal hann með sannanlegum hætti innan frestsins annað hvort 1) með samþykki lánamiðlara afhenda honum þá vöru eða þjónustu, sem lá að baki Kortaláninu og senda tilkynningu til Rapyd á pappír eða með tölvupósti, eða 2) senda tilkynningu til Rapyd á pappír eða með tölvupósti. Falli korthafi frá samningnum, sbr. ofangreint, skal hann greiða Rapyd höfuðstól og áfallna vexti frá því að lánið var greitt út og til þess dags þegar höfuðstóll er endurgreiddur án óþarfa tafa og eigi síðar en 30 almanaksdögum eftir að hann sendir Rapyd tilkynningu um að hann hyggist falla frá samningi. Reikna skal vexti í samræmi við lánssamninginn.
- Ef korthafi ákveður að nýta rétt sinn til að falla frá samningi um afhendingu vöru eða þjónustu, sem tengdur er samningi þessum um kortalán, er hann ekki lengur bundinn af samningi þessum, sbr. 1. mgr. 17. gr. laga nr. 33/2013 um neytendalán. Korthafi ber þá kostnað af samningsgerð og skilum á lánsfé sem Rapyd eða umsýsluaðili hefur stofnað til vegna samnings þessa. Ef vara eða þjónusta sem fellur undir samning þennan er ekki afhent, eða aðeins afhent að hluta til, eða er ekki í samræmi við samning um slíka afhendingu, á korthafi rétt á því að beita úrræðum gagnvart Rapyd, ef korthafi hefur áður beitt úrræðum gegn þeim sem afhenda ber vöru eða þjónustu, en ekki fengið þá úrlausn sem hann á rétt á samkvæmt dómi um afhendingu vöru eða þjónustu, sbr. 2. mgr. 17. gr. laga nr. 33/2013. Korthafi getur einungis leitað úrræða gagnvart Rapyd, að því tilskyldu að eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt: (i) Bú seljanda hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta, (ii) seljanda hefur verið veitt heimild til að leita nauðasamnings, eða (iii) í ljós hefur komið við aðfarargerð að seljandi getur ekki greitt skuldir sínar. Korthafi þarf að hafa lýst kröfu í þeim tilfellum sem (i) eða (ii) liður hér að framan eiga við. Möguleikar korthafa til fullnustu gagnvart Rapyd takmarkast við fjárhæð lána á þeim tíma sem krafa um úrbætur er gerð.
- Rapyd og umsýsluaðili taka ekki að sér milligöngu eða ábyrgð vegna ágreinings sem rísa kann milli söluaðila og korthafa/kaupanda vegna gæða vöru eða þjónustu sem greitt er fyrir með Kortaláni.
- Rapyd er heimilt að framselja samning þennan.
- Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um viðskipti þessi lög um neytendalán nr. 33/2013. Neytendastofa, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, fer með eftirlit með ákvæðum laganna. Korthafi hefur kynnt sér skilmála samningsins þ.m.t. greiðsluáætlun Kortaláns sem er hluti af samningi þessum og hefur að geyma yfirlit yfir afborganir, vexti og kostnað og samþykkir hann skilmála þessa með undirritun sinni á samninginn.
- Við gerð þessa samnings og fyrir útborgun láns mun Rapyd eða umsýsluaðili framkvæma lánshæfismat á korthafa, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 33/2013 um neytendalán. Mat á lánshæfi er byggt á upplýsingum sem eru til þess fallnar að veita áreiðanlegar vísbendingar um líkindi þess hvort korthafi geti efnt samninginn. Lánshæfismatið er byggt á viðskiptasögu aðila og/eða upplýsingum úr gagnagrunnum um fjárhagsmálefni og lánstraust. Með undirritun samnings þessa staðfestir korthafi að hann hefur veitt samþykki fyrir því að Rapyd eða umsýsluaðili afli og vinni með þær upplýsingar sem þörf er á vegna lánshæfismatsins, sbr. 7. tl. 2. gr. laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Slíkt samþykki nær einnig til þess að afla upplýsinga um korthafa frá þriðju aðilum. Korthafa er kunnugt um að Rapyd kann að vera óheimilt að veita lán þetta ef slíkt lánshæfismat hefur ekki verið framkvæmt eða ef lánshæfi eða greiðslumat leiðir í ljós að korthafi hefur augljóslega ekki fjárhagslega burði til þess að standa í skilum með lánið. Við vinnslu persónuupplýsinga er aðgangur takmarkaður við þá starfsmenn umsýsluaðila og Rapyds sem hann þurfa starfs síns vegna. Auk þess er umsýsluaðila og Rapyd heimilt að miðla persónuupplýsingum sín á milli og til vinnsluaðila, sem gert hafa þjónustusamninga við umsýsluaðila eða Rapyd, lögmanna, ábyrgðaraðila að skuld korthafa, eða annarra sem korthafi heimilar. Umsýsluaðili og Rapyd tryggja persónuvernd að persónuupplýsingum með því að leitast við að uppfylla á hverjum tíma lög og reglugerðir sem lúta að persónuvernd, m.a. með mótun öryggisstefnu og setningu þeirra öryggis- og verklagsreglna sem krafist er. Persónuupplýsingar korthafa eru varðveittar á meðan lán korthafa er ógreitt, eins lengi og lög mæla fyrir um eða viðskiptahagsmunir umsýsluaðila eða Rapyds krefjast þess og málefnaleg ástæða þykir til. Upplýsingar sem umsýsluaðili og Rapyd fá vegna láns þessa kunna að vera nýttar vegna síðari lána korthafa í því skyni að meta lánshæfi.
- Korthafi staðfestir að hann fékk fyrir undirritun þessa samnings upplýsingar um lán þetta á eyðublaði í tölvupósti á netfangið sem tilgreint er hér að framan samkvæmt reglugerð nr. 921/2013, um staðlað eyðublað sem lánveitandi notar til að veita neytanda upplýsingar áður en lánssamningur er gerður og aðrar upplýsingar sem lánveitanda ber að afhenda á varanlegum miðli. Korthafi er ábyrgur fyrir því að tilkynna Rapyd um breytt netfang. Korthafi staðfestir jafnframt að hann hefur verið upplýstur um sögulega þróun á greiðslubyrði óverðtryggðra lána, ef við á, sbr. 25. gr. laga nr. 33/2013 um neytendalán.
- Sérstök athygli er jafnframt vakin á því að söluaðili þiggur ekki sérstaka þóknun fyrir lánamiðlun vegna láns þessa.
- Lánssamningur þessi er gefin út í tveimur samhliða eintökum og heldur hvor aðili sínu eintaki.
- Rísi mál út af samningi þessum má reka það fyrir Héraðsdómi Reykjaness, eða á heimilisvarnarþingi korthafa. Jafnframt getur korthafi skotið ágreiningi er varðar fjárhagslegar kröfur og einkaréttarlega hagsmuni tengda láninu til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki.